‹ Til baka á forsíðu

Klárari á heimaskjáinn og læst í leiknum

Fyrir foreldra: hér eru þrjú einföld skref sem gera spilun barnsins þægilegri og öruggari. Fyrst að setja Klárari á heimaskjáinn eins og app, og svo að læsa tækinu í Klárari svo barnið villist ekki inn í önnur forrit eða stillingar óvart.

1. Setja Klárari á heimaskjáinn

iPad og iPhone (Safari)

  1. Opnaðu klarari.is í Safari.
  2. Ýttu á Deila-hnappinn (táknmynd: ferningur með ör upp úr honum). Ef þú sérð hann ekki strax, leitaðu í flipaslánni neðst eða efst á skjánum.
  3. Skrunaðu niður listann sem birtist og ýttu á Add to Home Screen (Bæta á heimaskjá). Ef valmöguleikinn sést ekki: skrunaðu alveg niður, ýttu á Edit Actions (Breyta aðgerðum) og bættu honum við listann.
  4. Á skjánum sem birtist getur þú kveikt á Open as Web App (Opna sem vefforrit) svo Klárari opnist enn meira eins og eigið app. Ýttu svo á Add (Bæta við) efst í hægra horni.

Táknmynd Klárari birtist núna á heimaskjánum og opnast í fullum skjá eins og app, ekki sem venjulegur vafragluggi.

Android (Chrome)

  1. Opnaðu klarari.is í Chrome.
  2. Ýttu á valmyndina hægra megin við vistfangalínuna (þrír punktar, „Meira“).
  3. Chrome sýnir ýmist Install app (Setja upp forrit) beint, eða fyrst Add to Home screen (Bæta á heimaskjá) og svo Install (Setja upp). Veldu þann valkost sem þú sérð.
  4. Fylgdu leiðbeiningunum sem birtast á skjánum.

2. Læsa iPad eða iPhone í Klárari (Guided Access)

Guided Access er innbyggð aðgengisstilling frá Apple sem læsir tækinu í eitt forrit í einu. Á meðan hún er virk kemst barnið ekki út í heimaskjáinn, önnur forrit eða stillingar fyrir slysni.

Setja upp í fyrsta sinn

  1. Farðu í Settings (Stillingar) > Accessibility (Aðgengi) > Guided Access.
  2. Kveiktu á rofanum við Guided Access.
  3. Ýttu á Passcode Settings (Lykilorðsstillingar) og settu sérstakt lykilorð fyrir Guided Access. Þú getur líka leyft Face ID eða Touch ID svo þú þurfir ekki að muna lykilorðið hverju sinni.

Hefja lotu

  1. Opnaðu Klárari af heimaskjánum.
  2. Þrísmelltu hratt á hliðartakkann (iPhone) eða efsta takkann (iPad). Á eldri tækjum með heimatakka, þrísmelltu á hann í staðinn.
  3. Ef flýtileiðavalmynd birtist, ýttu á „Guided Access“ í henni.
  4. Ýttu á Start (Byrja) efst í hægra horni.

Hætta lotu

  1. Þrísmelltu aftur á sama takka og áður.
  2. Staðfestu með lykilorðinu sem þú stilltir, eða með Face ID / Touch ID.
  3. Ýttu á End (Ljúka).

Nákvæm skref geta verið aðeins öðruvísi eftir útgáfu iOS, en leiðin Stillingar > Aðgengi > Guided Access er sú sama. Til að gera hlé á lotunni eða ljúka henni: á iOS 18 og iPadOS 18 og eldri útgáfum er tvísmellt á takkann í stað þess að þrísmella (að hefja lotu er alltaf þrísmellt, óháð útgáfu).

3. Sambærilegt á Android (að festa forrit)

Android kallar þetta „App pinning“ eða „Screen pinning“, á íslensku helst kallað að festa forrit. Sama hugmynd og Guided Access: eitt forrit í einu, ekkert slys út úr því.

Kveikja á festingu forrita

  1. Farðu í Stillingar > Öryggi (Security, á sumum tækjum „Öryggi og staðsetning“) > Ítarlegt (Advanced) > App pinning (Festa forrit).
  2. Kveiktu á rofanum „Use app pinning“ (Nota festingu forrita).

Festa Klárari

  1. Opnaðu Klárari, hvort sem er af heimaskjánum eða sem uppsett vefforrit.
  2. Strjúktu upp á miðjan skjáinn og haltu fingrinum kyrrum til að opna yfirlitið yfir opin forrit (á tækjum með þriggja hnappa stýringu, ýttu á yfirlitshnappinn í staðinn).
  3. Ýttu á táknmynd Klárari efst á spjaldinu og veldu „Pin“ (Festa).

Losa

Aðferðin fer eftir því hvernig þú flettir á milli forrita á tækinu:

Þú gætir þurft að slá inn skjálásinn þinn (PIN-númer, mynstur eða lykilorð) til að staðfesta.

Valmyndaheiti eru örlítið mismunandi milli framleiðanda og útgáfa Android. Á sumum tækjum heitir leiðin „Öryggi og persónuvernd > Fleiri öryggisstillingar > App pinning“ í stað „Öryggi > Ítarlegt > App pinning“ sem hér er lýst. Finnir þú ekki stillinguna, leitaðu að „festa forrit“ eða „app pinning“ í leitinni efst í stillingunum.