‹ Forsíðan
Stofna kennaraaðgang

Klárari í kennslustofunni

Íslenskir námsleikir þar sem námið er sjálft leikjakerfið, byggðir á ritrýndum rannsóknum á námsleikjum. Engar auglýsingar, engin kaup inni í leikjum og engin ávanabindandi hönnun. Á prufutímabilinu er allt frítt fyrir skóla.

Svona virkar það í bekknum

Tenging við aðalnámskrá

Leikirnir eru hannaðir utan um sömu námsþætti og aðalnámskrá grunnskóla byggir á í stærðfræði (talnaskilningur, reikniaðgerðir, brot og hlutföll, rúmfræði og mælingar), íslensku (lestur, stafsetning, málfræði), ensku, samfélagsgreinum og forritun. Taflan hér að neðan sýnir hvaða námsþætti hver leikur æfir og fyrir hvaða aldursbil hann hefur verkefni. Dæmin í leikjunum aðlagast getu hvers barns, sem er sú aðlögun sem rannsóknir sýna að styður nám best. Formleg kortlagning á einstök hæfniviðmið er á vegvísinum fyrir næstu útgáfu.

LeikurNámsþættir 3-56-9 10-1213-15

Prufuönn fyrir skólann þinn

Við leitum að fyrstu skólunum í prufu, fríum að fullu, gegn hreinskilinni endurgjöf. Skráðu áhuga á forsíðunni (veldu Skóli) eða stofnaðu kennaraaðgang beint og prófaðu með bekknum þínum í dag.